30 atriði sem við vissum ekki fyrir ferðalagið
leggjum af stað heim á morgun og eigum að lenda
kunnara en frá þurfi að segja að frí í útlöndum líður hraðar
ýmislegt, bæði skemmtilega og lærdómsríka hluti, en þó einnig miður
skemmtilega, t.a.m. skotbardaga og árásir dýra, eins og þeir vita
neita að slíkir atburðir eru líka skemmtilegir þegar frá líður, þó
einhverju safaríku að segja, en ekki bara "við gistum á krappí
gistiheimili sl. nótt", "við fengum þessar líka fínu núðlur í gær"
og "svakalega er mikið af dökkhærðu fólki
við sleikt sólina á taílensku eyjunni Koh Samet. Aldrei þessu
skrifuðum síðast, enda varla við öðru að búast þegar maður sefur
bara og étur og flatmagar þess á milli á strönd sem er beint fyrir
vegi að "súmma" aðeins upp ferðalagið með því að taka
höfðum í mesta lagi óljósan grun um, áður en við lögðum af stað í
við kærlega fyrir allar þær kveðjur, hvatningu og heillaóskir sem
ensku með "suðausturasískum" (spurning hvort þetta sé viðurkennt
af laoskum mat að dæma þá er hann líka betri en sá
stjórnendur Carlsberg hafi reynt að kaupa "réttinn" á honum, eins
notaðir prjónar í Laos líkt og í hinum löndunum þremur sem við
Kambódíumanna (a.m.k. einn þeirra), Luk Lak, er
leðurblökur eru bragðlausar, a.m.k. ef þær eru steiktar of
eru mjög bragðgóðar, enda smakkast þær eins og
Drekarnir myndu alla vega aldrei ganga um í bolum til heiðurs Ólafi
því að líða vítiskvalir inni á veitingastað í Bangkok um miðjan dag
staddir á sama veitingastað, "syngja" stanslaust í karókí
staðarins. Fyrst eru kvalirnar vissulega vegna magaverkja af
hlátri, en þegar þetta hefur verið í gangi í u.þ.b. hálftíma þá er
manni ekki lengur hlátur í huga og vill bara fara að komast
manneskja þig um stræti og torg og lætur þig syngja í
ferðakarókígræjur með von um að græða fúlgur. (For the
sem sagt er um vændið í Bangkok: það er mjög sýnilegt og virðist
vændiskonur eiga það til að tjá væntumþykju sína í garð ákveðins
líkamsvessa karlmanna í algjörlega óspurðum
flytur ótrúlegustu hluti á litlu vespunum sínum, t.d. sjónvarpstæki
(jafnvel tvö í einu), sófa og tré með rótum (sönnunargögn er að
finna í myndaalbúminu). Þá var met mannfjöldi sem við sáum saman á
einni vespu sex stykki, thank you very much for this
flautunni í tíma og ótíma er ekki venja hjá laoskum ökumönnum,
a.m.k. ekki í höfuðborginni Vientiane, líkt og hjá ökumönnum hinna
landleiðarinnar frá Bangkok til Siem Reap í Kambódíu er viðbjóður.
Við efumst ekki um það að hvergi á þessari plánetu sé að finna
borgum og bæjum sem við fórum til er langerfiðast að rata um
miðborg Hanoi, höfuðborg Víetnam. Skýringin á því liggur helst í
því að götuheitin breytast á u.þ.b. 30 metra fresti og öll húsin
líta nánast eins og út. Það var ekki hægt að labba frá
gistiheimilinu að nálægum veitingastað, og svo aftur til baka, án
moskítóflugur eru ekki uppháhaldsdýr drekanna. Reyndar, come to
think of it, eru engar moskítóflugur í uppáhaldi hjá
eiga sér stað í Phnom Penh þá beygja þjónustustúlkur á
lélegir í drykkjuleikjum, alla vega ef marka má Frakkann sem fór
snillingar, alla vega ef marka má þá tvo sem urðu á vegi okkar í
þjást af ávaxtafetish, alla vega ef marka má þann sem við hittum í
síst, prúttkunnátta er jafn nauðsynleg í SA-Asíu og súrefni.
Árás apanna
Þannig er að við vorum í þriggja daga í ferð um Halong Bay,
ótrúlega fallegan flóa undan strönd Norður-Víetnam sem samanstendur
af u.þ.b. 1600 eyjum og eyjaklösum með mergð fagurra fjalla, hella
og gróðurs. Þess má geta að flóinn er á heimsminjaskrá UNESCO
þannig að við erum algjörlega að sópa upp þessari heimsminjaskrá á
þessu ferðalagi (fyrir fróðleiksfúsa, sjá nánar um Halong Bay
Á degi tvö var heimsótt hin svokallaða Monkey Island þar sem, eins
og nafnið gefur til kynna, væn slumma af öpum ver ævi sinni. Ég var
mjög spenntur fyrir þessum hluta ferðarinnar þar sem ég, eins og
væntanlega margir aðrir, hef mjög gaman af dýrum og þá sérstaklega
öpum vegna skyldleikans við mannskepnuna. Hinn afskaplega illa
enskumælandi leiðsögumaður ferðarinnar hafði ekki minnst einu orði
á að aparnir gætu verið árásargjarnir (nema að hann hafi gert það
án þess að við Heiðrún skildum sem er alls ekki hægt að útiloka)
þannig að ég sá fyrir mér að maður gæti jafnvel haldið á eins og
Sú von dofnaði aðeins þegar við gengum á land í eyjunni því eitt
það fyrsta sem blasir við okkur er skilti sem varar við því að
aparnir gætu bitið. Það var samt ekkert til að æra óstöðugan því
hvaða dýr getur ekki tekið upp á því að bíta, klóra eða hvaðeina án
nokkurs fyrirvara? Þegar leiðsögumaðurinn okkar gengur svo beint
inn í hóp 3-4 apa og byrjar að gefa þeim sælgæti gleymum við þessu
skilti alveg um leið. Hópurinn rífur myndavélarnar upp úr töskunum
Eitthvað virðast aparnir hafa verið illa fyrirkallaðir þennan
annars ágæta þriðjudag því þeir byrja að ókyrrast mjög, t.d. var
eins og einn þeirra væri alltaf að fara að stökkva á mig þar sem ég
var að taka hann upp á videomyndavél. Ég hörfa því en færi mig
stuttu seinna nær og byrja aftur að taka. Í millitíðinni hvæsir
hann heiftarlega á Heiðrúnu. Svo allt í einu finn ég mikinn verk í
vinstri hásininni, öskra og hleyp af stað og allur hópurinn með.
Takk fyrir kærlega: höfðingi apahópsins hafði ráðist á vinstri
fótinn á mér! Í fyrstu hélt ég að sjálfsögðu að hann hafi bitið mig
en tveir strákar sem stóðu fyrir aftan mig sögðu að hann hafi
gripið í fótinn, glennt út tennurnar og verið að fara að sökkva
þeim í mig, en blessunarlega ekki náð því þar sem ég kippti
löppinni til í tæka tíð. Sárið styður líka vitnisburð piltanna þar
sem það líkist klóri en ekki biti. Það blæddi úr því í þó nokkurn
tíma en var svo hreinsað, settur plástur og látið þar við
skilið hann rétt) að það þyrfti ekkert að óttast að aparnir gætu
sýkt mann af hundaæði eða einhverju öðru álíka skemmtilegu og því
ferð til læknis bara látin eiga sig. Ég er alla vega ekki ennþá
farinn að urra og gelta, nú þremur dögum eftir árásina, og því má
gera ráð fyrir að ég sé heill heilsu fyrir utan sárið. En ég vona
svo sannarlega að ég fái ör sem muni fylgja mér alla lífstíð svo ég
geti bent á það á elliheimilinu og sagt: "Þetta fékk ég þegar ég
Þessi ferð um Halong Bay var annars algjör snilld, ekki síst vegna
þess hversu skemmtilegur hópurinn var. Fyrri nóttina gistum við á
bátnum sem sigldi með okkur um flóann en þá seinni á ágætis hóteli
á eyju sem heitir Cat Ba Island. Stemningin fyrra kvöldið var
frekar róleg þar sem fólkið var svona að kynnast en fjörið var
aðeins meira seinna kvöldið. Þar hjálpaði líklega til að íslensku
víkingunum fannst fólk ekki taka nógu hressilega á því í þambinu og
stóðu því fyrir drykkjuleikjum. Enginn varð þó það ofurölvi að hann
gerði einhverja skandala, en hinn franski Xavier var þó einna næst
því. Sá ágæti drengur var nefnilega ekki alveg sá besti í að skilja
leikina eða hitta víetnömskum smápeningum ofan í bolla - og er líka
vanari dannaðri drykkju á frönskum vínum en bjórþambi - og því fór
sem fór. Við erum búin að setja inn nýjar myndir, m.a. frá ferðinni
Núna höfum við hins vegar kvatt hið frábæra Víetnam og komum hingað
til Laos í gær, nánar tiltekið höfuðborgarinnar sem heitir
Vientiane. Áður en við lögðum upp í ferðalagið ákváðum við að
sleppa Laos þar sem við töldum okkur ekki hafa nægan tíma til að
hafa það með í pakkanum. Ég var líka alltaf að gæla við að geta
skotist til Kína en eftir að hafa íhugað málið sáum við að það er
náttúrlega bara vitleysa að fara í einhvern skottúr þangað norður
eftir til að sjá eitthvað brotabrot af landinu. Kína er svo
gríðarlega stórt að maður þarf að taka nokkrar vikur eða mánuði í
að skoða það og upplifa að einhverju marki. Síðan erum við búin að
heyra svo margt gott um Laos frá öðrum ferðalöngum undanfarnar
vikur þannig að við ákváðum að koma þar við á leiðinni aftur til
Fyrstu klukkustundirnar hér í Laos hafa verið ánægjulegar en
vitanlega lítið hægt að segja um land og þjóð enn sem komið er
fyrir utan það sem hægt er að lesa um í bókum og á Netinu. Eitt get
ég þó sagt: þjóðarbjórinn Beerlao er ótrúlega ljúfur. Angkor-bjór
Kambódíumanna og Hanoi-bjór Víetnama eru fínir en þeir blikna
algjörlega í samanburðinum við Beerlao. Annars hef ég mest drukkið
hinn "singapúrska" Tiger í ferðinni, enda fæst hann alls staðar og
er mjög fínn. Við þetta má svo bæta að Saigon-bjór Víetnama er
líklega bruggaður úr þvagi fyrrverandi hermanna. Með öðrum orðum:
Því miður getum við ekki stoppað lengi í Laos þar sem það er orðið
svo stutt í heimferðina og ætlunin er að taka nokkra daga á
taílenskri eyju eða strönd áður en við "joinum" ykkur í kuldanum.
En varðandi heimferðina þá höfum við sem sagt frestað henni því
annars værum við að yfirgefa asíska jörð u.þ.b. í þessum
töluðu/skrifuðu orðum. Þetta er búið að vera mikið vesen að samræma
breytingu á fluginu frá Bangkok til London og svo þaðan heim;
reyndar það mikið vesen að þetta er ekki ennþá komið endanlega á
hreint! Löng saga og leiðinleg. Trust me: you don´t wanna hear it.
Það lítur hins vegar út fyrir að við komum heim 9. eða 10. des. Ef
ekki þá setjumst við bara að hér í Asíu. Ég gæti t.d. fengið vinnu
sem apatemjari. Það virðist alla vega vera skortur á færu fólki í
Jæja, þetta er fyrir löngu orðið allt of langt. Þyrfti að fara að
Hundelt af papparössum
rétt að leiðrétta þennan misskilning með að Brad Pitt og
Angelina Jolie séu í Víetnam sem kemur m.a. fram í
ljósmyndarar tóku feil á okkur Heiðrúnu og þeim skötuhjúum þegar
við geystumst um á vespunni í Hoi An. Svo hefur staðsetningin
augljóslega eitthvað skolast til í fréttaæsingnum og þess vegna
talað um Ho Chi Minh í stað Hoi An. Við höfðum nú bara svolítið
gaman af þessu, þrátt fyrir að það hafi verið örlítið pirrandi að
til Hanoi eftir lestarferðina löngu (17 tímar thank you very much).
Þó stytti það óneitanlega ferðina að hlusta á u.þ.b. sjötuga,
víetnamska konu eiga í hrókasamræðum við sjálfa sig í svefni. Meira
Ættarmót víetnamskra moskítóflugna
það besta sem haldið hefur verið. Meira en nóg að bíta og brenna
fæturnir held ég bestir. Það er vonandi að þessi hvíti,
grandvaralausi bakpokaferðalangur verði aftur til taks næst þegar
ættarmót víetnamskra moskítóflugna verður haldið (og vonandi verður
Biggi bit ekki með einhverja svona skandala aftur ... það var samt
hjúkrunarfræðingurinn sem bólusetti okkur gegn hinum ýmsu kvillum
áherslu á að við værum í síðerma flíkum og buxum í ljósaskiptunum,
þ.e. við sólsetur og sólarupprás. Þá væru (helvítis!)
moskítóflugurnar nefnilega í mesta bitstuðinu. Eftir að Heiðrún
sofnaði frekar snemma í fyrrakvöld, og syfjan ekki farin að sækja á
mig að ráði, settist ég því algjörlega áhyggjulaus - í kvartbuxum
og ber að ofan - út á svalir hótelsins okkar hér í bænum Hoi An til
að lepja smá mjöð og hlusta á tónlist. Afraksturinn af því? Ég
vakna í gær með svo mörg bit að það er eins og ég sé kominn með
psoriasis, takk fyrir kærlega! Hafið þið einhvern tímann séð dreka
með psoriasis? Ef ekki þá get ég sagt ykkur það að það er ekki
fögur sjón. Þegar við bætist bóndabrúnka og dreifbýlisroði eftir
veruna í sólinni að undanförnu þá er ég eiginlega kominn á það stig
að manneskja með fullu viti myndi ekki pota í mig með priki. Þessi
nokkurn veginn í miðju Víetnam, eftir langt og strangt ferðalag frá
fjallaþorpinu Dalat um síðustu helgi. Lögðum af stað kl. átta á
laugardagsmorgni og vorum ekki komin til Hoi An fyrr en um
hádegisbil á sunnudeginum. Fyrri hluti ferðarinnar var ca sex klst.
rútuferð til bæjarins Nha Trang þar sem tók við löng bið eftir
næturlest til Hoi An. Sú ferð fór svo misvel í ferðalangana; ég
svaf mjög vel eftir að hafa gert í því að skella í mig nokkrum
bjórum áður til þess arna. Heiðrún svaf hins vegar því miður ekki
jafn vel og var þar fyrst og fremst um að kenna kvefinu sem hún
náði sér í í Dalat. Ungi, víetnamski verkfræðingurinn sem deildi
með okkur klefa sýndist mér svo bara sofa eins og steinn,
kringum 30 gráður og í tilefni af því verðum við að sjálfsögðu að
senda samúðarkveðjur til ykkar í hríðarbylnum heima. Hótelið okkar
er með sundlaugargarði og höfum við bæði chillað þar og á
ströndinni sem er án nokkurs vafa betri en flestar hinna evrópsku
sólarstranda að því leytinu að það er ekki allt útatað í
flatmagandi fólki. Í ofanálag er sjórinn fáranlega heitur. Hvorugt
okkar hafði áður migið í saltan sjó Kyrrahafsins, en eftir þessi
fyrstu kynni fær það hæstu einkunn í okkar kladda. En það verður að
viðurkennast að það er einn galli á gjöf Njarðar: ágangur
sölufólksins á ströndinni er næstum því jafn pirrandi og
áðurnefndur ágangur moskítóflugnanna. Það líða varla þrjár mínútur
frá því maður afþakkar vörur einnar sölumanneskju þar til sú næsta
er mætt. Og eitt "no thank you" er yfirleitt ekki nóg. Stundum suða
þær í manni í 5-10 mínútur áður en þær loksins sannfærast að maður
ætlar ekki að kaupa neinn ananas, sígarettupakka, armband,
þverfótar maður nefnilega ekki fyrir búðum sem bjóða upp á
klæðskerasaumuð föt og drekarnir hafa að sjálfsögðu nýtt sér það.
Og verðið? Án þess að vera með einhverjar málalengingar (enda nóg
komið af þeim í þessum pistli): skid og ingen ting. Ef við sláum
ekki í gegn í fjölskyldujólaboðunum framundan þá er eitthvað mikið
að. ;) Líka um að gera að nýta tækifærið í þeim þar sem ekki verður
bæinn hér í Hoi An (sem fyrir fróðleiksfúsa er á heimsminjaskrá
var að sjálfsögðu spíttað á henni villt og galið þann sólarhring
sem við höfðum hana að léni - en það byrjaði þó ekki gæfulega.
Þegar undirritaður var að prufukeyra kvikindið vildi ekki betur til
en svo að ég beygi óvart öfugu megin inn einstefnugötu. Með þá
lukku sem fylgdi mér þann daginn, en þetta var sama daginn og ég
vaknaði með "psoriasið", var auðvitað bíll að koma út úr götunni á
nákvæmlega sama tíma. Ég snarhemla og næ að forða árekstri en missi
vespuna á hliðina. Ég slapp sem betur fer ómeiddur en fararskjótinn
var temmilega vel rispaður á hliðinni. Og til að toppa allt saman
þá gerðist þetta beint fyrir framan nefið á náunganum sem ætlaði að
við að leigja þessum brjálaða psoriasissýkta Íslending tryllitækið
eftir að hafa horft upp á aðfarirnar, en sem betur fer sló hann
til. Við þurftum þó að punga út fimm dollurum fyrir viðgerðinni
höfuðborgarinnar, Hanoi, seinnipartinn á morgun. Það verður því
önnur nóttin í lest á innan við viku. Heiðrún er blessunarlega búin
að ná sér af kvefinu og nær því vonandi að sofa betur í þetta
skiptið. Látum ykkur vita ef annar verkfræðingur biður að
Kuldi, ávaxtafetish og náttfatatíska
dag – því er ég hér sest við tölvuna. Ágætt kannski að fá smá
Dalat sem er lítið fjallaþorp í Suður-Víetnam. Þar dvöldum við í
tvær nætur sem var ágætis tilbreyting frá brjálæðinu í Ho Chi Minh
borg (Saigon). Í Dalat var allt smærra í sniðum og minna áreiti –
færri túristar, betlarar, mótórhjól og bílflaut – mjög gott mál.
Hitastigið var einnig ólíkt því sem við höfum vanist undanfarnar
vikur, ágætis veður á daginn en skítakuldi á kvöldin (á víetnamskan
mælikvarða). Það mátti líka sjá breytingar á vörunum sem sölufólkið
í bænum bauð upp á; í stað sólgleraugna, kveikjara og blævængja
voru húfur, treflar og vettlingar vinsælustu vörurnar. Ónæmiskerfið
fann aðeins fyrir þessum breytingum á hitastiginu og einhver
kvefpest hefur blossað upp – ég hefði kannski átt að fjárfesta í þó
okkur langaði aðeins að upplifa eitthvað nýtt og skoða aðeins
náttúruna. Við höfum eiginlega fengið nóg af skoðunarferðum í hof
og musteri í bili. Þar sem við höfðum ekki áhuga á að fara í
heilsdags skipulagða ferð um nágrenni Dalat tók eigandi hótelsins
sem við gistum á okkur í einkaferð að mjög fallegum stað,
að stoppa hérna í Nha Trang. Við eigum pantaða lestarferð til Hoi
An seint í kvöld og verðum ekki komin á áfangastað fyrr en um
hádegisbil á morgun. Vonandi getum við eitthvað sofnað í
m.a. í skipulagða skoðunarferð um borgina – þar sem við sáum margt
og mikið, þó misjafnlega áhugavert. Í hópnum sem við vorum með
þennan dag, var ansi sérstakur fýr frá Malasíu. Hann þjáðist af
einhvers konar ávaxtafetishi og var sí og æ að láta stoppa rútuna
til þess að kaupa hina skrýtnustu ávexti hjá götusölufólki. Þó að
þetta hafi orðið frekar þreytandi til lengdar var mjög áhugavert að
Víetnamstríðið, en þar sem tíminn sem gefinn var í að skoða safnið
var frekar stuttur í þessari skipulögðu hópferð ákvað hann að
skella sér aftur daginn eftir til þess að svala frekari
fróðleiksfýsn sinni. Á meðan sprangaði ég um búðirnar og lét m.a.
sérsauma á mig bol! Við hittum svo aftur Þjóðverjana tvo og bresku
stelpuna sem við kynntumst á bátnum niður Mekong-ána og sumbluðum
stöðum sem við höfum heimsótt hér í Víetnam. Flest allar konurnar
eru klæddar í “virkilega smart” skræpóttar blússur og buxur í stíl.
Kvölds og morgna er líka mjög algengt að konurnar klæðist mjög
heimilislegum bómullarnáttfötum! Á markaðnum sem við heimsóttum í
sölubásanna að selja þessi “fallegu” efni sem dressin er gerð úr og
náttföt í öllum regnbogans litum. Þið þurfið samt ekkert að hafa
ég er túlkurinn í ferðinni, hann á mjög erfitt með að skilja
enskuna með þessum sérstaka hreim sem íbúar þessa heimshluta
Leður hvað?
í þessari veröld myndi ég líklega segja leðurblökur, snákar og
köngulær. En belive it or not: við Heiðrún smökkuðum tvö þessara
kvikinda á laugardagskvöldið - leðurblöku og snák! Og eins og það
væri ekki nóg þá fengum við okkur smá smakk af farking mús í
eftirrétt! Og hvernig smakkaðist svo eruð þið væntanlega að velta
fyrir ykkur. Leðurblakan var bragðlaus (full mikið steikt),
Víetnam á laugardeginum voru m.a. tveir þýskir strákar og ein bresk
stelpa. Þegar í höfn var komið í bænum Chau Doc, um 100 þús. manna
þorp við árbakka Mekong, um tvöleytið og valið stóð á milli þess að
hoppa upp í mini-bus með fótapláss passlegt fyrir innfædda
(meðalhæð Víetnama er í mesta lagi einn og ekkert) til að halda
áleiðis til Ho Chi Minh (Saigon) - ferð sem tekur um 6 klst. - eða
gista eina nótt í Chau Doc, völdum við drekarnir seinni kostinn.
Við fórum því á eitt gistiheimilanna sem mælt er með í Lonely
Planet, eða Biblíunni eins og við köllum bókina gjarnan í daglegu
tali, og fengum þar þetta líka fína herbergi með loftkælingu og
heitu vatni (og reyndar tvær viftur og tvö aukarúm algjörlega í
óspurðum fréttum) fyrir skitna 10 dollara, eða ca 700 kr. Það kom
svo í ljós að Þjóðverjarnir og breska stelpan ákvaðu líka að gista
í Chau Doc, og það á sama gistiheimili, og æxluðust hlutirnir
þannig að við fórum með þeim út að borða um kvöldið. Við endum svo
á stað sem einn innfæddur piltur sagði að byði upp á fínan mat og
ódýran og bragðgóðan víetnamskan bjór. Í stuttu máli þá var þessi
"veitingastaður" afar óaðlaðandi búlla - sumir myndu líklega nota
orðið "skítabúlla" en ekki jafn dannaður drengur og ég - með þeim
allra minnstu plaststólum og - borðum sem ég hef séð. En við slógum
vendipunktur á kvöldinu þegar matseðill þessarar búllu var opnaður.
Réttir eins og "Roasted snake", "Deep-fried snake", "Steamed bats"
og "Fried bats" blöstu við okkur. Eftir að við höfðum öll fengið
þvagfærasýkingu af hlátri yfir því sem boðið var upp á var að
sjálfsögðu bara eitt að gera í stöðunni fyrir evrópska
bakpokaferðalanga í leit að ævintýrum í Austurlöndum fjær: panta
verið brjálaður yfir því að vera ekki með myndavél á mér þá var það
þarna. Á disknum sem þjónninn kom með voru átta litlar leðurblökur,
u.þ.b. á stærð við hamstra, kolsvartar að lit eftir steikinguna.
Það eina sem var eftir af vængjunum voru tvö lítil bein sem stóðu
hvort út úr sinni "öxl" kvikindanna, en - og haldið ykkur fast -
hausarnir voru ennþá á! Eftir að þvagfærasýkingin var kölluð fram
að nýju með vænum af skammti af hlátri yfir útliti kvöldverðarins,
og vitanlega tilheyrandi upphrópunum um hversu viðbjóðslega þetta
liti út, var komið að hinu óumflýjanlega: að smakka á réttinum.
Eins og áður sagði voru þessi blessuðu kvikindi nánast bragðlaus,
enda voru þau algjörlega grilluð í gegn. Ekki fór mikið fyrir
kjötinu á þessum blökum leðursins þannig að það sem við Heiðrún,
ásamt nýju vinunum okkar þremur, sátum þarna og tugðum með
viðbjóðssvip í framan var fyrst og fremst skinn og bein, og
væntanlega einhver óbjóðs innyfli. Ég segi bara Fear Factor hvað?
Við létum hausana vera, enda ekki framkvæmanlegt að renna þeim
niður fyrir minna en milljón dollara. Annar þýsku strákanna reyndi
vera ekki með einhverjar málalengingar smakkaðist hann ótrúlega
vel. En halló, hvað smakkast ekki vel eftir að þú hefur nýlokið við
að éta leðurblöku! Þegar hér var komið sögu voru við hin fimm
fræknu orðin það óstöðvandi í ógeðsátinu að þegar í ljós kom að
nokkrir Víetnamar á næsta borði voru að éta steiktar mýs (for the
record: þær voru hvegi sjáanlegar á matseðlinum) kröfðumst við þess
að sjálfsögðu að fá að smakka. Það var sjálfsagt af "Namanna"
hálfu, og viti menn: steikt mús er lostæti, enda bragðast hún
nánast alveg eins og kjúklingur! Við drekarnir hlæjum nú að
íslenskum þorramat. Að borða hann verður hér eftir eins og að
víetnömskum bjór sem var nú ekkert sérstaklega góður, en við létum
okkur hafa það. Fyrst fasta fæðið var eins framandi og raunin var
var ekki annað hægt en að hafa drykkina líka í óvenjulegri
kantinum. (Fyrir áhugasama minnir mig að bjórinn heiti Rong Ðó. Og
þetta er ekki innsláttarvilla; Víetnamar hafa "ð" í sínu tungumáli
og það er borið fram á sama hátt og í íslensku.) Þegar leið á
kvöldið var drukkið aðeins meira af þessum bjór og svo örlítið
meira og svo dass í viðbót sem endaði eiginlega með því að við
Heiðrún lentum á okkar fyrsta kenderíi (það eru líka börn sem lesa
þessa síðu) hérna úti. Stórskemmtilegt kvöld í alla staði, enda
Þjóðverjarnir og breska stelpan hið skemmtilegasta fólk. Þau ætluðu
hins vegar að koma við í öðrum bæ áður en farið yrði til Ho Chi
Minh þannig að kvensurnar tvær skiptust á símanúmeri og e-meili svo
við gætum hugsanlega endurtekið leikinn þar í borg eftir einhverja
Suður-Víetnamar skilst mér að vilji flestir kalla sínu gamla nafni,
Saigon. Kannski ekki furða þar sem það voru Norður-Víetnamar sem
gáfu borginni hið nýja nafn eftir að hafa náð henni á sitt vald í
Víetnamstríðinu. Þetta er fjölmennasta borg Víetnam með um 5,5
milljón íbúa á meðan höfuðborgin, Hanoi, er ekki með "nema" um 3,5
milljónir. Við komum hingað undir kvöld í gær og höfum ekki gert
neitt markvert síðan nema að skoða næsta nágrenni við gistiheimilið
sem við erum á. (Ég er hreinlega ekki viss en ég held að við séum
nokkur veginn í miðborginni.) Það verður ekki annað sagt en HCM sé
"stórborgarlegri" en Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu. Til að mynda
er hér Kentucky Fried og fleiri sjáanleg merki "ameríkanseringar",
enda ekki furða í ljósi sögunnar. Ég segi hugsanlega meira frá
upplifun okkar af borginni seinna en á morgun ætlum við m.a. í
(Klukkan hér er 7 klst. á undan klukkunni heima.) Vonandi verður
hann frekar hefðbundinn - en maður veit aldrei. Fleiri sögur, þ.á
m. af drukkna Víetnamanum sem tók þátt í stríðinu og spjallaði við
mér vonir um (sbr. síðasta pistil). Það er nokkuð ljóst að
Apocalypse Now verður tekin á leigu skömmu eftir heimkomuna, ef hún
Nálægð við dauðann
fyrir þá sem eru eitthvað áhyggjufullir um okkur hérna úti að fara
úr límingunum eftir að hafa lesið yfirskrift þessa pistils. Maður
er alltaf í ákveðinni nálægð við dauðann því eins og kunnugra er en
frá þurfi að segja getur kallið komið hvenær sem er. Síðastliðnir
dagar hér í Kambódíu hafa hins vegar verið óvenju athyglisverðir að
umferðarmenningin. Hér er ekkert til sem heitir stöðvunarskylda,
biðskylda, hægri réttur eða eitthvað í þá veru. Frumskógarlögmálið
er það sem gildir. Ef þú þarft að komast yfir gatnamót þar sem ekki
eru umferðarljós, og slík ljós eru síður en svo á hverju strái hér
í Phnom Penh þrátt fyrir að borgarbúar séu ein milljón talsins (man
líka aðeins eftir einum í Siem Reap þar sem búa tæplega 200 þús.
manns), þá þarftu einfaldlega að skjóta þér inn á milli bílanna,
mótorhjólanna og túk túk-anna sem aka þá stundina þvert á þína
akstursstefnu. Einnig er eins gott að biðja til æðri máttarvalda um
að ökumenn þeirra farartækja sýni þér einhverja miskunn og hægi á
spotta virðist heldur ekki vera neitt tiltökumál, a.m.k. ekki hjá
sumum mótorhjóla- og túk túk ökumönnum sem við Heiðrún höfum fengið
far hjá. Það verður seint sögð notaleg tilfinning að kúldrast aftan
á mótorhjóli – hjálmlaus í kvartbuxum og stuttermabol – þegar gæinn
sjálfsagðasti hlutur í Kambódíu er að planta allri fjölskyldunni á
eina litla vespu. Að sjá fjóra saman geysast um á slíkum
fararskjóta er mjög algeng sjón. Metið er sex, þar af voru fjögur
skilið við umfjöllun um umferðarmenninguna í Kambódíu í tengslum
við dauðann án þess að minnast sérstaklega á túk túk-bílstjórana.
Túk túk er sem sagt vespa eða lítið mótorhjól með eins konar vagn í
eftirdragi sem rúmar 2-6 í sæti, allt eftir stærð vagnsins (hefði
kannski átt að útskýra fyrirbærið fyrr). Að meðaltali er manni
boðið far með túk túk u.þ.b. 7000 sinnum á dag. Maður er ekki fyrr
kominn út úr herberginu á gistiheimilinu en að túk túk bílstjóri á
vegum gistiheimilisins spyr hvort mann vanti ekki skutl. Sem maður
stendur þarna á ganginum, enn með stírurnar í augnkrókunum og
starir á félagann skælbrosandi, afþakkar maður túrinn eins
kurteislega og maður getur, en hugsar um leið með hryllingi til
þess að þetta þarf maður að gera 6999 sinnum í viðbót þann daginn.
En hvernig tengist það dauðanum? Jú, mann langar stundum til að
kyrkja túk túk bílstjórana, sérstaklega þegar langt er liðið á
daginn, svo ekki sé talað um ef þeir grípa í mann eins og hinir
ágengustu eiga til. Ekki samt misskilja, Kambódíumenn eru upp til
Heiðrúnu í óvenju mikla nálægð við dauðann, ef svo má segja, var
skoðunarferðin um Killing Fields og S-21 fangelsið (einnig nefnt
Tuol Sleng) á þriðjudaginn. Þetta eru þeir tveir staðir þar sem
grimmdarverk Pol Pots og hans manna úr röðum Rauðu khmeranna voru
aðallega framin á árunum 1975-1979. Sagt er að milljónir manna hafi
verið myrtar í stjórnartíð Pol Pot en fjöldinn virðast eitthvað
vera á reiki; ég hef séð tölur allt frá 1,2 milljónum upp í 3
milljónir. Það gildir hins vegar einu. Ljóst er að um er að ræða
eitt hryllilegasta og viðbjóðslegasta tímabil
í Phnom Penh og er nú safn, var fólk pyntað á eins hræðilegan hátt
og hugsast getur og þar má sjá ljósmyndir, teikningar, texta, tæki
og tól sem bera þessu vitni. Þeir sem ekki dóu í fangelsinu, ýmist
vegna pyntinga, barsmíða eða úr hungri, enduðu ævi sína á Killing
Fields sem er um 15 km fyrir utan borgina. Um var að ræða fólk á
öllum aldri og báðum kynjum, frá börnum til gamals fólks. Og ekki
fékk fólkið skjótan dauðdaga heldur voru langflestir barðir til
dauða því Rauðu khmerarnir vildu ekki eyða “verðmætum” byssukúlum í
aftökurnar. Líkin voru svo sett í fjöldagrafir sem eru á Killing
Fields. Það verður vitanlega ekki með orðum lýst hvers konar
upplifun það var að koma á þessa staði. (Hægt er að skoða myndir
frá S-21 og Killing Fields, sem og fleiri nýjar myndir úr ferðinni,
atriðinu sem minnst var á í upphafi. Að kvöldi þriðjudagsins fórum
við, í því all sérstaka andlega ástandi sem við vorum í eftir að
hafa “upplifað” þennan hrylling (upp að því marki sem það er hægt í
svona skoðunarferð), á japanskan veitingastað. Það var bara mjög
notalegt; sushi-ið ljúffengt, þjónustan til fyrirmyndar og við
vorum blessunarlega ekki beðin um að rista okkur á hol að japönskum
e.k. útikaffihús eftir matinn. Eftir að hafa setið þar í
rólegheitum dágóða stund heyrist allt í einu sírenuvæl nálgast og
mikið bílflaut (jafnvel á mælikvarða Phnom Penh). Örfáum sekúndum
síðar kemur stór svartur jeppi brunandi og út um einn gluggann
teygir maður sig með eitt stykki skammbyssu. Það skiptir engum
togum heldur skýtur hann tveimur skotum á eitthvað eða einhvern
fyrir framan jeppann! Enginn virðist hafa orðið fyrir skotunum en
hvort frændinn var að skjóta á eitthvert farartæki sem jeppinn var
að elta, eða gangandi vegfaranda, vitum við ekki. Heiðrún sá með
eigin augum þegar skotin riðu af þar sem hún sneri í átt að götunni
en mér tókst bara að sjá þennan riddara götunnar eftir á, haldandi
á hólknum þar sem reykurinn rauk úr honum. Við vorum sem betur fer
ekki í beinni skotlínu, en var eðlilega svolítið brugðið (eftir á
finnst mér það náttúrlega frábært að hafa upplifað þetta, en frk.
súrrealískt fyrir okkur ferðalangana frá Íslandi. Kannski til
merkis um það sátum við, og stór hópur af túristum frá Vesturlöndum
sem staddur var á kaffihúsinu á sama tíma, í sætum okkar allan
tímann. Innfæddu þjónustustúlkurnar beygðu sig aftur á móti niður á
bak við næsta stól þegar jeppinn kom brunandi. Þegar við spurðum
þær út í þetta eftir á þá vildu þær meina, ef við skildum bjöguðu
enskuna rétt, að þetta hefði verið einhver gengjabardagi, þ.e.
löggan hefði ekki átt þarna hlut að máli, þrátt fyrir að við
upphafi pistilsins þá þurfið þið ekki að fara að hafa einhverjar
extra-áhyggjur af okkur þrátt fyrir þetta (heyrið þið það, kæru
mæður). Líkurnar á því að þetta gerist aftur er 1 á móti grilljón.
Þetta var örugglega bara “meant to be” svo við hefðum góða sögu að
bili. Ferðinni er svo heitið til Víetnam á morgun eða hinn. Eins og
minnst var á í síðasta pistli ætlum við að fara siglandi niður
Mekong-ána inn í Nam. Get ekki beðið eftir því að hlusta á The End
með Doors á bátnum. (Upphafs- og lokalag snilldarmyndarinnar
Apocalypse Now sem gerist að miklu leyti um borð í bát, siglandi
eftir á í Kambódíu (man e-r hvort það var Mekong?), á meðan
mis í pöntuninni því á spjaldinu stendur (just in timberlake ef
Af rútuferðum, hofum, hundum og krókódílum
Fyrirsagnirnar sem blöstu við mér þegar ég fór inn á Vísi og Mbl.
áðan voru "Allt flug liggur niðri", "Tvö skip slitnuðu frá bryggju
í Hafnarfjarðahöfn" og "Eitt elsta tré borgarinnar rifnaði upp með
rótum". Sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur hér úr hitanum í
huga um að orðtakið "Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð
gott" sé upprunið í Kambódíu, og þá líklega hjá einhverjum sem kom
landleiðina inn í norðvesturhluta landsins. Ferðalagið frá Bangkok
hingað til bæjarins Siem Reap í Kambódíu var nefnilega eins
viðbjóðslegt og dvölin í bænum hefur verið frábær. Við vorum bæði
búin að lesa um það og heyra frá öðrum ferðalöngum (m.a. Einari
Erni sem við mæltum okkur mót við í Bangkok en hann hefur verið á
ferðalagi um Suðaustur-Asíu sl. tvo mánuði, sjá ferðasögu hans
vegirnir á þessari leið, þ.e.a.s. eftir að komið er yfir
landamærin, væru hræðilegir. En ég held að ekkert hefði getað
undirbúið okkur fyrir það sem var framundan. Ég hef ekið um verstu
vegi Vestfjarða en þeir eru eins og þýskur autoban í samanburði við
þennan veg, sem ég hélt á tímabili að lægi til helvítis. Það segir
kannski meira en mörg orð að þessi "spotti" frá landamærunum að
Siem Reap er u.þ.b. 160 km (svipað og frá Reykjavík að Brú í
Hrútafirði) en það tekur 5-6 klst. að aka hann. Fótaplássið í
rútunni frá Bangkok var alveg ágætt, en í fjandans fangarútunni sem
við vorum sett í eftir að komið var yfir landamærin var plássið það
lítið að jafnvel Danny Devito hefði fengið alvarlegar æðaþrengingar
komum hingað á fimmtudaginn verið frábær. Við erum á fínu
gistiheimili sem flestir sem voru samferða okkur í rútunni gista á.
Það er alls ekki jafn "fansí" og hótelið sem við vorum á í Bangkok,
enda var það einbeitt ætlun ferðalanganna að fara í eitthvað aðeins
meira "sloppí". Það eru þó þægindi eins og klósett og sturta sem
fylgja með herberginu, auk loftræstingar, enda efast ég um að ég
aðeins rétt fyrir utan bæinn. Þeirra frægast er Angkor Wat, stærsta
musteri veraldar, en mynd af því er m.a. á þjóðfána Kambódíu. Við
fórum að skoða hofin í gær og það var vægast sagt mikil upplifun.
Það verður ekki annað sagt en að maður hafi alveg séð ljótari
byggingar um ævina, enda eru hofin á heimsminjaskrá UNESCO. Í
myndamöppunni hér á síðunni á að vera hægt (ef allt hefur gengið að
óskum með innsetninguna) að skoða myndir frá skoðunarferðinni, auk
fleiri mynda. Fyrir áhugasama er svo nánari fróðleikur um
að við Heiðrún fengum okkur að borða á einum útiveitingastaðanna
sem þarna eru, ef veitingastaði má kalla því þetta eru bara
einhverjar skítabúllur. Þegar við vorum svo gott sem búin að klára
af diskunum okkar kem ég auga á einn ófríðasta og horaðasta hund
sem ég hef augum litið, eiginlega af "myndi ekki pota í hann með
priki"-kalibernum, vera að sleikja af diskum fyrir innan
afgreiðsluborðið sem einhverjir gestir höfðu augljóslega borðað af
stuttu áður! Ég bendi drengnum sem afgreiddi okkur á aðfarir
hundsins, og viti menn: hann sá akkúrat ekkert að þessu! Þegar ég
svo segi við pilt, "Maybe he was licking our dishes earlier
today?", voru viðbrögðin bros sem var einhvers staðar á mörkum þess
að endurspegla vandræðalegheit, skemmtun, sakleysi, stríðni og
hundaæði. Drengurinn þekkti líklega enga aðra aðferð við uppvask,
og ég lái honum því ekki. Ef einu orðin sem birtast á þessari síðu
þegar líða fer á ferðina verða "voff", "urr" og fleira í þá veru,
viljið þið þá vinsamlegast senda lækni hingað á eftir okkur sem er
vel að sér um meðferð við hundaæði, og leggja inn kæru hjá Interpol
Chong Kneas" sem eins og heitið gefur til kynna er þorp á floti
(sjá myndamöppu). Það er við strendur Tonlé Sap vatns, í næsta
nágrenni við Siem Reap. Og maður lifandi hvað það var mikil snilld
að sigla um þorpið! Ef eitthvað er þá var þetta enn áhugaverðari
túr en um Angkor-hofin. Öll hús voru eiginlega bara prammar á
floti, þ.m.t. allir skólar, sjúkrahús bæjarins, veitingastaðir
o.s.frv. Svakalegt! Og þetta var bara eðlilegasti hlutur í heimi
á var svo krókódílaræktun. Að sjá haug af gráðugum krókódílum
berjast um fisk var ekki beint til að skemma daginn, hvað þá í
ljósi þess að drekar og krókódílar eru alls ekki ósvipaðar
Kambódíu. Það er annað hvort hægt að fara með bát eða rútu en hvort
tveggja tekur um 5-6 klst. Ótrúlegt en satt erum við að spá í að
taka rútuna því við ætlum að sigla niður Mekong-ána þegar við förum
yfir til Víetnam og viljum því spara þá upplifun þangað til þá.
Vegurinn til Phnom Penh er víst líka fínn, enda getur ekkert
síðunnar. Íris Mos, vinkona Heiðrúnar, á heiðurinn af því. Íris, þú
Hinar ýmsu hliðar Bangkok
Drekarnir heilsa frá Bangkok. Þið verðið að fyrirgefa leti
við skrif hér á síðuna eftir að við lögðum upp í ferðalagið.
Þegar maður er kominn á svona framandi stað og hefur
óendanlegt frelsi til að gera allan andskotann, þá er það að
setjast fyrir framan tölvu ekki alveg það fyrsta sem mann
alls ekki ósvipuð því sem maður hafði gert sér í hugarlund um
borgina ("hugarlund" all gaylegt orð en látum það samt standa). Hér
er umferð dauðans, hávaði óttans og mengun skrattans. Og já, it´s
all true what thay say about the prostitution: hér drjúpa
vændiskonur af hverju strái. Margar líta út fyrir að hafa fermst
fyrir korteri og slísí karlpjengar á öllum aldri, ófáir komnir af
besta skeiði, nýta sér þjónustu þeirra augljóslega óspart. Ég efast
alla vega stórlega um að þeir sem sjást leiða stúlkurnar hérna um
göturnar á kvöldin, sumir jafnvel um hábjartan dag, séu einungis að
fá sight-seeing um borgina. Langflestir þessara manna eru vestrænir
í útliti. Ég hef blessunarlega verið laus við nánast allt áreiti í
tengslum við vændið þar sem við Heiðrún leiðumst flestum stundum
þegar við örkum um göturnar, eðlilega þó ekki væri nema bara til að
týna ekki hvort öðru. En ef takinu er sleppt þá eru skrokkarnir
falboðnir umsvifalaust. Ein gerðist jafnvel það kræf að lýsa yfir
"væntumþykju" sinni í garð ákveðins líkamsvessa undirritaðs,
ein hliðin af Bangkok. Þær eru líka margar góðar sem við höfum
kynnst á þessum stutta tíma okkar hér, t.a.m. er fólkið mjög
vingjarnlegt, maturinn fínn og sumar byggingar virkilega flottar.
Þar ber óneitanlega hæst konungshöllin og hofin í nágrenni hennar
sem við skoðuðum í dag. Maður var nánast orðlaus á köflum. (Okkur
tókst ekki að setja inn myndir af þessu núna í kvöld þar sem tölvan
sem þetta er skrifað á er eitthvað mis og eitthvað gömul ... tekst
ferðalanganna er nokkuð gott, að frátöldu því að Heiðrún virðist
hafa fengið einhvern skít í sár sem hún er með á einum fingrinum
því roði og einhver skringilegur "seyðingur" upp eftir hendinni
hefur fylgt í kjölfarið. Það blessast vonandi; ef ekki þá fáum við
bara lánað kjötexi hjá einhverjum götusalanum og tökum puttann af
ekki fjarri miðborg Bangkok. Jafnvel of fínu. En show some
understanding, við erum að gíra okkur niður úr hinum vestrænu
þægindum í hinn asíska "bakpokaferðalangastandard".
Leigubílstjórinn sem keyrði okkur af flugvellinum á líka þarna
stóra sök að máli því hann, vitandi að við áttum hvergi pantaða
gistingu, stoppaði allt í einu fyrir framan þetta hótel og nánast
fleygði okkur inn í anddyrið. Hefur líklega fengið prósentur fyrir
að mæta með túrista á svæðið. Anddyrið leit alls ekki illa út og
verðið fyrir gistinguna náttúrlega hlægilegt þannig að það var ekki
tíminn að klárast. Þurfum líka að vakna eldsnemma á morgun þar sem
við erum að fara með rútu yfir til Kambódíu kl. 6:30 í fyrramálið.
Verður líklega ferð dauðans; ca 10 klst. og vegirnir eftir að komið
Drekarnir hefja sig til flugs
Við leggjum af stað í ferðalagið mikla í fyrramálið. Nánar
tiltekið á vélin til London að fara í loftið kl. hálfníu, eða
eftir rétt rúma fimm tíma. Drekarnir eru í ruglinu. Vorum að
ljúka við að pakka og smá svefn næst á dagskrá. Samt ekkert víst
plögg, þ.á m. „visað“ inn í Nam sem barst okkur á fimmtudaginn.
Mátti varla tæpara standa. Fengum líka lánaða videokameru frá
Svönu, mömmu Heiðrúnar, og Gulla, kallinum hennar. Það stefnir því
í að Crouching Tiger, Hidden Dragon - Part II komi í kvikmyndahús
verðum við væntanlega stödd í Bangkok. Ef ekkert bólar á okkur hér
á síðunni þegar líða fer á vikuna þá kallið út
Niðurtalning og valkvíði
síðustu bólusetningarnar fyrir ferðina , þá ættum við að vera
ágætlega sett næstu árin og jafnvel næstu áratugina gegn hinum
ýmsu sjúkdómum. Eftir læknisferðina verður förinni svo heitið í
apótekið - planið er að byrgja sig vel af alls konar lyfastöffi
einfalt líf okkar er þessa dagana þá hafa dagarnir aðallega farið í
aðdraganda ferðalagsins snúast aðallega um niðurpökkun í bakpokana.
Hún hefur verið vöruð við af vönum ferðalöngum að pakka sem minnst
af fatnaði niður. Þetta ætti að teljast frekar mikið áhyggjuefni
fyrir kvenkyns ferðalang (með valkvíða) sem ávallt hefur ferðast
með yfirvigt, hvort sem hún hefur verið á leið í helgarferð eða
hverri mínútunni - ekki spillir svo fyrir að í stoppinu okkar í
London ætlum við taka lestina inn í borgina og hitta Arngunni og
Mannréttindabrot, Baugsmiðlar og Brellu-Bjössi
fyrrverandi yfirmann á NFS (einn þeirra skulum við segja) og
núverandi frambjóðanda, Róbert Marshall, á netinu. Þar sagði
hann m.a. að það sé að ákveðnu leyti mannréttindabrot að vera
blaða-/fréttamaður því þeir megi ekki tjá skoðanir sínar á hinum
og þessum hlutum, a.m.k. ekki opinberlega. Það er nokkuð til í
þessu hjá Marshallinum. (Fyrir áhugasama þá er umrætt viðtal
mig um hitt og þetta ófarvarandis hér á síðunni, líkt og ég gerði
t.a.m. í síðustu færslu um hinar nýtilkomnu hvalveiðar landans, þá
vona ég að þið sýnið því skilning að ég starfaði sem fréttamaður í
um tvö og hálft ár þar til núna nýlega. Mun ég þá skýla mér á bak
við þá afsökun að þetta sé nokkurs konar kaþarsis eftir skort á
fullum mannréttindum undanfarin misseri. Ég mun þó reyna að halda
þessu í algjöru lágmarki þar sem þjóðmál og hin ýmsu þrætuepli
tengjast Asíuferðalaginu ekki vitund, a.m.k. ekki enn sem komið er.
Auk þess er ekki verra að eiga möguleika á að eiga afturkvæmt í
fjölmiðlageirann, með snefil af trúverðugleika eftir, sem minnkar
óneitanlega ef digurbarki er brúkaður og gífuryrði látin
starfsmenn NFS komnir í framboð. Auk Róberts eru það Glúmur
Baldvinsson og Helga Vala Helgadóttir. Og öll herja þau á prófkjör
Samfylkingarinnar! (hmmm...) Segið svo að helvískir
hæstvirtur dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, hafi ekki stungið
niður penna til að benda á þessa staðreynd. Þessa spillingu. Þessa
enn eina sönnun þess að markmið Baugsmiðlanna sé að halda málstað
Víetnamar með vesen
í brottför. Heiðrún hringdi í morgun í sendiráð Víetnam í
Kaupmannahöfn, þangað sem við sendum visa-umsókn ásamt
vegabréfunum okkar í síðustu viku, til að athuga hvort
diplómataradippin væru ekki alveg örugglega á tánum með
þetta. Það var eins gott að hún hringdi því sú sem var til
svara sagði að umsóknirnar væru ekki fullnægjandi þar sem það
vantaði nákvæma dagsetningu á það hvenær við hygðumst koma
til Nam. Við erum náttúrlega ekki með það niðurneglt og
skrifuðum því bara „nóvember“ á umsóknirnar. Við gerðum það
líka með visa-umsóknirnar fyrir Kambódíu og það var ekkert
rúðustrikaðri með þetta og ætli umsóknirnar okkar hafi ekki bara
verið komnar ofan í „unsufficient“-skúffuna hjá þeim, og hefðu
komið til með að vera þar fram að dómsdegi, ef Heiðrún hefði ekki
hringt. En til að gera langa sögu góða þá sagði hún
sendiráðskonunni bara að setja 7. nóv. sem „entry“ dag, því það er
nokkuð ljóst að við ætlum a.m.k. ekki inn í Nam fyrir það, sem hún
og gerði og sagðist svo senda passana til okkar í síðasta lagi á
Vísindavefnum. Þar segir meðal annars: „Í vestrænni menningu er
drekinn oftast illt og eyðileggjandi afl sem vinna þarf bug á. Í
kristinni trú er hann tákngervingur syndar og heiðni, stundum
einnig tengdur djöflinum. Í Austurlöndum fjær hélt drekinn aftur á
móti góðkynjuðum eiginleikum sínum og er oft goðumlík vera sem
færir mönnum gæfu.“ (Sjá www.visindavefur.is/svar.asp?id=2441) Er
það nema von að við drekahjúin séum á leið til Austurlanda fjær?
Spurning hvort við reynum ekki bara að fá vinnu þar og setjast að
til frambúðar. Ég meina, „goðumlík vera“. Býður einhver
hvalveiðimál er nú meira ruglið. Það truflar mig lítið þó nokkrir
hvalir séu drepnir. En ef rétt er sem margir hafa bent á, að það sé
enginn markaður fyrir hvalkjöt, þá er það heimskulegra en orð fá
lýst að veiða níu óseljanlega kjötskrokka og fá um leið
„alþjóðasamfélagið“ (svo það tískuhugtak sé notað) upp á móti sér.
Way the by: sá einhver debattinn á milli Kristjáns Loftssonar,
forstjóra Hvals hf., og Magnúsar Skarphéðinssonar í Kastljósinu í
síðustu viku? Ég hef sjaldan eða aldrei séð nokkurn mann koma jafn
Vegabréfaheimsreisa og skornir bakpokar
good work. Farið samt varlega. Ég hef sterkan grun um að síðan
sé hleruð. (Frænka Guðbrandsdóttir, jú það verður örugglega
einhver heima á morgun. Við verðum alla vega ekki í
frekar fátækleg enn sem komið er. Íris vinkona Heiðrúnar ætlar hins
vegar að mixa einhverja flotta mynd til að hafa efst. Nostradamus
spáði því víst á sínum tíma að eldspúandi dýrategund myndi jafnvel
bregða þar fyrir. Svo er spurning hvort við höfum útlitið eitthvað
öðuvísi. Óneitanlega þægilegast að lesa dökkan texta á ljósum
brottför fer blessunarlega fækkandi. Á meðal þess sem þarf að gera
er að senda vegabréfin okkar í heimsreisu. Þau komu frá Þýskalandi
í fyrradag þar sem þau voru í gíslingu kambódískra blýantnagara.
Til þess að komast inn í Kambódíu þarf nefnilega visa
(vegabréfsáritun) og það fær maður hjá sendiráði Kambódíu í farking
Berlín! Strax á miðvikudagsmorgun voru passarnir svo sendir á næsta
áfangastað, sendiráð Víetnam í Kaupmannahöfn, til þess að fá visa
inn í Nam. Nú vonar maður bara að passarnir verði komnir fyrir
ætlaða brottför. Ef ekki þá förum við bara til Bandaríkjanna í
staðinn fyrir Asíu. Ég hef nefnilega heyrt að það sé ekkert verið
að taka strangt á því þar vestra hvort maður sé með vegabréf eða
maður hins vegar fengið hjá sendiráði „alþýðulýðveldisins“ hér í
Reykjavík. Ef við fölumst eftir því (ekki enn víst hvort við herjum
á Kína, sbr. pistil 17. okt.) þyrftum við þó að fá helvíti hraða
afgreiðslu. Taílendingar eru sem betur fer ekki með neitt svona
bakpoka í vikunni. Oh hvað maður er global. Ég verð illa svikinn ef
það verður ekki skorið a.m.k einu sinni á hann í ferðinni af
einhverju þjófapakki. Heiðrún ætlar að fá lánaðan poka hjá Hildi
vinkonu sinni. Þjófarnir mega hins vegar alveg sleppa því að skera
háttinn. Langur dagur í vinnunni á morgun. Nei, alveg rétt, ég er
Óvissuferð til Asíu
erum við á leið í fimm vikna ferðalag um Suðaustur-Asíu. Þegar
þetta er skrifað eru 12 dagar í brottför og óneitanlega er
spenningur farinn að hríslast um kroppinn. Kuldinn sem færist nú í
aukana hér á klakanum hefur samt líklega eitthvað með þennan
skjálfta í kroppum vorum að gera. Í hitanum í Asíu innan örfárra
daga varðar okkur hins vegar álíka mikið um íslenskt veðurfar og
kölska varðar um krækiberjaræktun (suckas!). En ef þetta ferðalag
er ekki tilefni til að taka upp þá iðju sem - að manni virðist -
annar hver Íslendingur stundar reglulega, blogga, þá veit ég ekki
sem við fljúgum í einni lotu til Bangkok, höfuðborgar Taílands. Það
er ekki nema u.þ.b. 11 og hálfrar klukkustundar flugferð og fljúgum
við með Thai Airways. Það var nánast um allt of auðugan garð að
gresja þegar kom að því að velja flugfélag til að fljúga með þenna
skottúr en kunnugir sögðu okkur að Thai Airways væri snilldin ein,
t.d. er sér sjónvarpsskjár fyrir hvern farþega með ógrynnisúrval af
kvikmyndum til að horfa á. Eitthvað höfum við heyrt af því að
fluffurnar selji jafnvel blíðu sína, sérstaklega ef maður er
svokallaður „sexy man“, en við seljum það ekki dýrara en við
komuna til Taílands er nánast autt blað. Það eina sem er víst er að
við ætlum að fara til Kambódíu og Víetnam, og hugsanlega Kína
(Fulltrúi veikara kynsins í sambandinu er að reyna að „aggitera“
fyrir því að skjótast aðeins þangað, þó ekki væri nema bara til að
pissa á Kínamúrinn, en fulltrúi lokaorðsins í sambandinu efast um
að tími vinnist til þess). Við eigum svo pantað flug frá Bangkok
til London 1. desember og þaðan heim daginn
nokkrir staðir sem ætlunin er að fara til og skoða í þessum löndum,
ferðarinnar á einni af hinum rómuðu paradísarströndum Taílands. En
hvenær eða hvernig farið verður á hina og þessa staði er alls
óvíst. Eins og maðurinn sagði: Við spilum þetta eftir
þess hér á síðunni næstu vikurnar og endilega kommentið eins og